Sauðfé í Lundi

 
Aðalsíðan  Til baka Tölfræði

Í Lundi er rekið sauðfjárbú með um 420 kindur og hefur búið verið meðal þeirra afurðahæstu á landinu undanfarin ár.

Um það bil þriðjungur af okkar fé er kollótt ættað af Ströndum, en þessar kindur eru flestar hvítar. Hornóttu kindurnar eru ættar  úr Öræfum en í þeim hópi er ýmsar lítir að finna, þar á meðal flekkótt, mögótt, botnótt og bildótt. Nokkrar ær af forustukyni eru líka í hópnum.

 ljósgrátt Ljósgrátt

Ljósgrár hornóttur gemlingur  /  Ljósgrátt lamb

Svart Grátt 

Svart lamb /  Grátt lamb

Grá og svört Grá ær til vinstri, svört til hægri

 Krúna Grár kollótt krúnótt ær með

 írauðu lambi

Kolur Kolur

Írautt, kolótt lamb / Sama lamb um haustið

 Móri Móri 

Mórautt lamb / Sá sami ári seinna 

 Mirja Skræfa

Bildótt ær /Augnbildótt á annað augað

 Grámórauð 

Grámórauð ær

 Picture 665a.jpg (74279 bytes) Botna

Svartbotnótt ær / Svartbotnótt lamb

 Mórbotnótt Mórbotnótt  

Mórbotnótt lamb / Mórbotnótt lamb að hausti

 Blesa Mórblesótt, sokkótt lamb af  forustukyni

 Mögubildótt Svartmögubildótt ær með  svartmögubildóttu og svartmögóttu lambi

 Lömb Blettótt

Einhvern veginn blettótt lömb... /  Annað þeirra að hausti

  Bensi&Hrútur1a.jpg (41250 bytes)Eða svona hálfhausótt?

Vor

Í byrjun maí hefst sauðburður hjá okkur.

Sum eru lítil, önnur stór.

Flestar fullorðnar ær eru tvílembdar, nokkuð er um að þær séu þrílembdar, en fjór- og fimmlembingar þekkjast líka. Um það bil helmingur gemlinga eru þó einlembdir.  

Hér fylgir myndasyrpa um hvernig burður gengur fyrir sér.

Ætli ég beri ekki í dag? Spotti Kemur eitthvað?  

Úff... Vatnsbelgur Klauf  

Það er hvítt! Rembast smá í viðbót Fætt! 

Karað Á fætur Úps... 

Mjólkursopi

 

Fyrstu sólahringana dvelja lömbin inni í stíum sem hafa verið komnar upp í hlöðunni.  

 Krúða með gimbur og hrút Gott að hvílast á baki mömmu Eða fara á fjallaklifur  

Svo fara þau í stærri stíum þar sem þau geta leikið sér við önnur lömb.

 Lömb Lömb Í letikasti 

En fara svo fljótlega út í girðingu.

 Lömb  Gemlingar  

 Blesa&Keða Blesa og dætur

Blesa nokkra vikna gömul / Blesa nokkrum árum seinna, annað lambið eins og amman á litinn

 

Sumar

Í Júní fer féð á fjall. Á meðan heimamenn eru að huga að heyskapnum eru þau að gæða sér að fjallagrösum, og eru vel yfir 40 kg þegar þau koma af fjalli um haustið. 

Haust

Um haustið er svo smalað, og fara drjúgan tíma í því þar sem féð er dreift á mörgum dölum og fjörðum. Ekki er hægt að smala mikið á hesti á þessu svæði, en hundarnir koma að góðum notum. 

 Réttir Réttað

 Kindur Nokkrar kindur á leiðinni heim.

 

       Ómerkt; biti framan       Gagnbitað; stýft

Merkin okkar. 

Merkið til vinstri er notað í gemlingslömbum, í lömbum undan kollóttum ám og mislitum ám. Merkið til hægri er notað í lömbum undan hvítum hornóttum ám.

Um 60 gemlingar eru settir á á hverju ári, og eru þeir ásamt nokkrum álitlegum hrútum látnar fara í afkvæmarannsókn og fá byggingadóm. 

Undanfarið hefur meðalvigt lamba verið rúmlega 18 kg, og þar sem frjósemin hefur verið tæplega tvö lömb á hverja á þýðir það að kjöt eftir hverja á er um 36 kg. Þetta er meðal bestu árangri sem næst hér á landi, og var Lundur verðlaunað sem besta sauðfjárbú austurlands árið 2005. Tölfræði.

Vetur

Kindurnar mega vera úti í heimahaga þangað til að tekur að vetra. Jólin er sögð vera hátíð hrútanna en þá hefst fengitíminn. Yfirleitt eru einhverjar ær líka sæddar með úrvalshrútum.

 Kindur Fé að hausti.

I byrjun vetrar hafa kindurnar líka verið rúnar.

 Fyrir Fyrir.  Eftir Eftir.

 Byrjað fyrir aftan hægri framfót Kviðurinn rúinn Svo upp háls og niður hnakka 

 Niður vinstra siðu Niður hægra siðu Endað á afturendann

Í febrúar eru rollurnar sónarskoðaðar til að athuga hvað þær munu eignast mörg lömb. Þetta ger vinnan auðveltari um sauðburð.

 Einlembd Þessi er merkt með bláu, og á því von á einu lambi

Kindurnar fá að fara út af og til í góðu veðri um veturinn, og svo hefst sauðburð aftur í maí...

Stundum fæðast þó lömb heldur fyrr, ef móðir þeirra hefur hitt hrút úti í haga um haustið.

 1april Lömb fædd 1 apríl 2004

 Marslömb Lömb fædd 7 mars 2006

 Krúða & Jóhann I Marslömb Marslömb

.Kindur Ær úti að viðra sig um vorið.

 Hrútar Hrútarnir líka.

Gemlingar úti að leika sér um veturinn

Gemlingur Gemlingur

 Gemlingar Gemlingar Gemlingar    

 Þoka Gemlingur Gemlingar

 

Nöfn

Allar ær í Lundi eiga nöfn, en ekki eingöngu númer eins og tíðkast viða annar staðar nú orðið. Nöfnin eru af ýmsum toga, en algeng eru nöfn sem lýsa lit eða litareinkenni kindarinnar, eins og Botna, Blesa, Krúna og Leista. Önnur nöfn vitna óbeint í litinn, eins og Fönn, Snæbrá og Hvítá, eða í önnur útlitseinkenni en dæmi um það eru Úthyrna, Breið og Ljót.

Sum nöfn lýsa því hvar kindin gengur um sumrin, eins og Slenja, Eskja og Hólma, en önnur eru til komin vegna atburða í lífi þeirra, til dæmis við burð, eins og  Fóstra, Stjúpa og Fimma, eða í samband við smalamennsku, en dæmi um það eru Glíma, Þraut og Óvissa. Sum eru nefnd eftir skapgerð, eins og Gæf, Löt og Þæg.

Eða þá  geta þær fengið nöfn eftir eiganda sín eins og Geira og Agla, eða annarra manna sem hafa komið við sögu t.d. Sissa og Mæja. Venjuleg konunöfn eru líka notuð, t.d Begga, Bára, Katla og Fríða. Nokkuð er um að notað sé dýra og fuglanöfn, t.d. Mús, Rotta, Rækja, Svala, Dúfa, og Ugla, svo og plöntunöfn eins og Fífa, Sóley, Lilja, Fura, Planta og Rót.

En sum nöfn virðast, allavega við fyrstu sýn, vera nokkurn veginn tekin úr lofti, til dæmis Tuska, Blaðra, Krús, Sneið, Súpa, Pera, Klessa...